Færsluflokkur: Ferðalög
16.8.2010 | 11:36
Óvart til Frakklands
Fyrir nákvæmlega ári síðan var ferðinni heitið til Marmaris á Tyrklandi. Ég og vinur minn ætluðum að fara svo sparlega í þessa ferð höfðum skipulagt þetta aðeins öðruvísi. Ferðaáætlunin var þannig: fljúgum til London Heathrow lest til London Standsted þaðan flogið til Rhodos á Grikklandi og loks siglt yfir frá Rhodos á Grikklandi yfir til Marmaris í Tyrklandi. Þetta skipulag heppnaðist ekki betur en svo að þegar við héldum að við vorum að lenda í Rhodos í Grikklandi tókum við eftir að flugvélin var ekki að lækka flugið á eyju. Ég vatt mér að ókunnum sessunauti mínum og spurði vandræðalega:
Ég: Uhh where are we lending?
Sessunauturinn: Rodez.
Ég: Where is Rodez?
Sessunauturinn: That´s in France.Ég: Oh boy
Við tveir vorum komnir til smábæjar í Frakklandi á meðan hinir sem höfðu sem við ætluðum að verja fríinu með voru í Tyrklandi. Þessi óvæntu hlutskipti hugðust okkur ekki, þó að þetta væri mjög fallegur bær og henti mjög vel fyrir fólk í rómantískum hugleiðingum, þá vildum við burt og það sem allra fyrst. Þannig að við fórum strax í að útvega nýja flugmiða þar sem að vera áfram í Frakklandi, var ekki sérlega fýsilegur kostur. Daginn eftir vorum við alveg slakir, þar sem við vorum búnir að útvega miða. Tveimur tímum fyrir flug fórum við í að finna leigubíl, aðeins um tíu mínútna akstur upp á flugvöll, en hvergi var hægt að finna slíka þjónustu og við orðnir nokkuð áhyggjufullir. Við vorum að horfa upp á að missa af fluginu og vera lengur í Frakklandi með tilheyrandi kostnaði. Ég var farinn að stöðva umferð og veifa 50 evru seðli í von um smá skutl, félaginn fór í verslanir og spurði einn verslunareigandann um far á flugvöllinn; hann lokaði versluninni og skutlaði okkur á flugvöllinn....
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 12:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)